Ég hef fram til þessa verið ólm í amerískar pönnukökur og þótt svo ljómandi tilvalið að gera þær um helgar. Á meira að segja litla pönnu sem steikir fjórar í einu. Rosa fínt.

En eins og ég hef áður greint frá þá er ég í átaki þessa dagana og þegar maður er í átaki gengur ekkert að háma í sig hveitiklatta með sírópi og smjöri.
Hvað er þá til bragðs að taka? Jú… maður breytir bara uppskriftinni!
Hér er uppskrift að dásamlegum íslensk/amerískum pönnukökum/lummum sem engann svíkja og allra síst heilsuátakið.
- 2 dl hveiti/heilhveiti/ spelt (má vera hvaða hveiti sem er í raun! ég nota spelt)
- 1 msk hrásykur
- 1 tsk lyftiduft
- 1/4 teskeið salt
- 1 dl haframjöl
- 2 og hálfur dl mjólk
- 2 msk matarolía
- 1 egg
Hræra öllu vel saman og hægt er að nota hvort sem er pönnukökupönnu eða venjulega pönnu og nota svo sósusleif til að gera litlar lummur (það er betra að hafa þær litlar).
Auðvitað breyti ég þessu svo eftir smag og behag. Í morgun stappaði ég t.d. smá banana og bætti útí ásamt hveitikími.
Það er hægt að setja kanil og rúsínur, eða bláber og fyrir litlu stelpuna mína setti ég nokkrar súkkulaðirúsínur út í bananapönnsuna í morgun.
Svo er gott að setja pínu hunang og/eða vanilludropa ef manni langar.
Þetta er meiriháttar gott og ofboðslega auðvelt :)




















Donatella Versace er þekkt fyrir að hafa tekið við Versace tískuveldinu þegar bróðir hennar tískumógullinn Gianni Versace var árið 1997 myrtur við heimili sitt þegar hann snéri heim úr morgungöngu- en var hann skotin fyrir framan dyrnar á heimili sínu í Miami.



Og Lash Queen Feline er ekki bara einstaklega fallegur á að líta… svo lokkandi að mér finnst hann mjálma til mín þarna sem hann liggur í veskinu „taktu mig up, taktu mig upp!“ heldur er hann líka sérlega góður.






