Hann Halldór Laxness blessaður lét gera sundlaug í garðinn sinn við Gljúfrastein. Merkilegt að fleiri íslendingar skuli ekki hafa látið sér detta í hug að setja sundlaug við heimili sín.

…þetta er svo dásamlegt. Og við með allt okkar heita vatn. Ef ég hefði verið útrásarvíkingur þá er engin spurning að sundlaug hefði frekar orðið fyrir valinu en þyrla. Ha? :)
Ég vafraði aðeins á netinu og fann nokkrar myndir af heimilum sem ég myndi flytja inn í strax ef ég ætti þess kost. Hrein fegurð í alla staði…
Sjáiði nýju sundlaugina á Hofsósi sem verður opnuð eftir nokkra daga, að ég held.
http://www.flickr.com/photos/gummirben/4442068286/
ætli það hafi nú ekki verið þyrla og sundlaug hjá þeim flestum:)
í mosfellsbænum þar sem ég ólst upp var sundlaug í garðinum við annað hvert hús í elstu hverfunum, byggð í kringum 1955.
Líklega fylgdi þetta því að þetta voru mest allt gamlir bændur að flytja nær mölinni og þótti sjálfsagt að hafa risastóra garða og þar af leiðandi pláss fyrir sundlaug. Laxnes var náttúrulega uppá sitt besta í mosfellssveitinni þá svo kannski var þetta laxnessnobb?
staðreyndin við mosfellsdalinn er að á þessum árum (1950) fylgdu húsunum jarðir, á jörðunum er heitt vatn og fólk nýtti heita vatnið afar vel því þar liggja mikil verðmæti.
-vatnið hitaði íbúðarhúsið, síðan gróðurhúsið og rann að lokum í sundlaugina.
..til að fegra garðinn enn meira bjuggu sumir sér til fiskatjörn svona til að nýta síðustu hitaeiningarnar.
- góð nýting á verðmætum jarðar sem annars færu til spillis.
flottar myndir af sundlauginni í hofsós.